ADHD á kvennamáli – Leiðarvísir að einfaldara lífi – september
Lokað fyrir skráningar.
Bendum á næsta námskeið sem er í október.
ADHD á kvennamáli Leiðarvísir að einfaldara lífi
Námskeið fyrir konur með ADHD hefur göngu sína 5. september næstkomandi. ADHD á kvennamáli er samvinnuverkefni Sigrúnar Jónsdóttur og Kristbjargar Konu sem báðar eru ADHD markþjálfarar og eru báðar greindar með ADHD.
Á námskeiðinu leggjum við grunn að bættu sjálfstrausti og jákvæðri sjálfsmynd með aðferðum ADHD markþjálfunar.
Við ræðum starfsemi ADHD heilans. Hvernig hann hefur áhrif á getu þína, ákvarðanir og gjörðir og kennum þér einfaldar leiðir til að yfirstíga hindranir og auka sjálfsþekkingu. Við hægjum á, hlúum að og spornum gegn neikvæðum áhrifum álags, streitu og svefnerfiðleika með leiðum sem reynast hjálplegar til að róa taugakerfið m.a með Yoga Nidra.
Nánar Hópurinn hittist í fjórar vikur á þriðjudögum Dagsetningar: 5. 12. 19. og 26. september
Tími: kl. 17.30-20.30. Hvert skipti eru 3 klst með hléi.
Staðsetning: Við hittumst í hlýlegu og fallegu umhverfi Lífsgæðasetursins í Hafnarfirði.
Innifalið:
Boðið er upp á léttar veitingar ásamt námskeiðsgögnum og vinnubók. Á meðan á námskeiðinu stendur fá þátttakendur 15% afslátt af ADHD markþjálfun hjá Kristbjörgu og Sigrúnu.
Verð: kr. 69.000.-
Síðasta námskeið fylltist á örfáum dögum. Þú gengur frá greiðslu hér fyrir neðan- annað hvort velur þú kortagreiðslu eða að fá greiðslukröfu í heimanbanka. Stéttarfélög hafa tekið þátt í kostnaði vegna þátttöku í þessu námskeiði. Við hvetjum þig til að kanna möguleikana hjá þínu stéttarfélagi.
Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir konur á öllum aldri sem vilja beina athyglinni að styrkleikum sínum, takst á við áskoranir og skila skömminni. Námskeiðið hentar konum sem eru tilbúnar að deila eða læra af reynslu annarra kvenna.
Allar nánari upplýsingar verða sendar skráðum þátttakendum í tölvupósti áður en námskeiðið hefst.
Hlýjar kveðjur Sigrún og Kristbjörg Kona ADHD markþjálfar.
Vitnisburður þátttakenda
,,Námskeiðið hefur gefið mér aukin styrk og gert mér fært að sýna sjálfri mér meiri mildi, ást og virðingu. Sigrún og Kristbjörg eru skilningsríkar, hlýjar og uppfullar af allskonar fróðleik, stuðningi og eflingu. Get ekki beðið eftir framhaldsnámskeiði“.
Inga Hrönn Guðmundsdóttir, athafnakona.
,,Algjörlega frábært í alla staði. Námskeiðið var vel sett fram, þægilegt, afslappað og mér líður svo vel eftir að hafa tekið þátt í þessu námskeiði.“
Anna Þóra Björnsdóttir,verslunareigandi og uppistandari.
,,Mér finnst ég hafa lært helling á þessu námskeiði. Það hjálpaði mér að skilja mig og mitt ADHD enn betur og ég fékk tækifæri til að spegla mig í öðrum konum og þeirra upplifunum sem var ómetanlegt. Ég er ofboðslega fegin að hafa slegið til.“
Halldóra Jóhannsdóttir, þjónustufulltrúi
,,Fræðslan og slökunin var æðisleg og mun nýtast mér vel. Sigrún og Kristbjörg eru greinilega mjög færar á sínu sviði og búa yfir mikilli þekkingu og reynslu sem þær miðluðu vel frá sér.“
Lilja Björk Guðrúnardóttir félagsráðgjafi.
,,Virkilega ánægð með námskeiðið – vel uppsett- skipulagt- fjölbreytt- notalegt og eflandi. Hefur bætt líf mitt og lífsgæði mín til muna. Kristbjörg og Sigrún eru yndislegir leiðbeinendur og upplifunin er þannig að þær séu að halda námskeiðið af eldmóði. Mjög flott að fá frían markþjálfunar tíma. Litlu hlutirnir eins og veitingar, möppur og bækur skipta líka máli.“
Dagný Þóra Baldursdóttir, Iðjuþjálfi.
