Dagsetningar
Tímarnir eru á fimmtudögum. Dagsetningarnar eru 3. 10. 17. og 24. október. Á meðan á námskeiðinu stendur hafa iðkendur aðgang að upptökum á Yoga Nidra hugleiðslum sem hægt er a nýta heimavið á meðan á námskeiði stendur. Með námskeiðinu fylgir augnhvíla þér til eignar.
Staður og stund
Tímarnir hefjast stundvíslega klukkan 17:00 í Auganu, sal á 4. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó. Gott er að vera mætt/mættur 10 mínútum fyrr, koma sér vel fyrir á dýnu og slaka á. Mikilvægt er að komið sé inn í salinn í ró og kyrrð sé í salnum þar til slökunin hefst. Stundvíslega kl. 17:00 er salnum lokað og Nidra stundin hefst.
Verð
Námskeiðið kostar 14.000 kr. Iðkendur fá sendan tölvupóst um tilhögun Yoga Nidra fyrir fyrsta tímann.
Þú gengur frá bókun hér og færð senda kröfu í heimabanka eða greiðir með korti við bókun.
Mörg stéttarfélög styrkja félaga sína með líkamsræktar- eða heilsustyrk.
ATH!
Takmarkaður fjöldi plássa er á hvert námskeiðið.
Um Yoga Nidra
Yoga Nidra er leidd djúpslökun. Rannsóknir sýna að 45 mínútur í Yoga Nidra jafngildir 4 klst. í svefn. Rannsóknir bæði á íslandi og erlendis sýna gildi Nidra fyrir þá sem eru að takast á við streitu, kulnun, álag, svefnerfiðleika, kvíða eða þunglyndi.
Iðkendur liggja á dýnu í algerri slökun og eru leiddir áfram skref fyrir skref af Yoga Nidra kennara. Líkaminn sefur en undirmeðvitundin vakir.