Dagsetningar
Fimmtudaga 11. – 18. og 25. janúar auk 2. – 8. og 15. febrúar. Samtals 6 skipti.

Staður og stund
Tímarnir hefjast stundvíslega klukkan 17:00 í Auganu, sal á 4. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó. Gott er að vera mætt/mættur 10 mínútum fyrr, koma sér vel fyrir á dýnu og slaka á. Mikilvægt er að komið sé inn í salinn í ró og kyrrð sé í salnum þar til slökunin hefst. Stundvíslega kl. 17:00 er salnum lokað og Nidra stundin hefst.

Verð
Námskeiðið kostar 16.500 kr. Iðkendur fá sendann tölvupóst um tilhögun Yoga Nidra fyrir fyrsta tímann.

Þú gengur frá bókun hér og færð senda kröfu í heimabanka eða greiðir með korti við bókun.

Mörg stéttarfélög styrkja félaga sína með líkamsræktar- eða heilsustyrk.

ATH!
Takmarkaður fjöldi plássa er á hvert námskeiðið.

Um Yoga Nidra
Yoga Nidra er leidd djúpslökun. Rannsóknir sýna að 45 mínútur í Yoga Nidra jafngildir 4 klst. í svefn. Rannsóknir bæði á íslandi og erlendis sýna gildi Nidra fyrir þá sem eru að takast á við streitu, kulnun, álag, svefnerfiðleika, kvíða eða þunglyndi.

Iðkendur liggja á dýnu í algerri slökun og eru leiddir áfram skref fyrir skref af Yoga Nidra kennara. Líkaminn sefur en undirmeðvitundin vakir.

Kennarar
Sigrún Jónsdóttir og Ólafur Sigvaldason Yoga Nidra kennarar Svefn Yoga leiða tímana á fimmtudögum.

Þau hafa lokið Yoga Nidra kennararéttindum í grunn- og framhaldsnámi hjá Kamini Desai, I am Yoga Nidra,  kennaranámi í Pranyama Yoga öndun hjá Matsyendra og fyrsta stigi í tónheilun með kristalskálum og gongi.

Hleð inn ...

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Sendu okkur skilaboð

Míró
Persónuverndaryfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.