ADHD á kvennamáli. Nýtt námskeið hefst 7.október

Leiðarvísir að einfaldara líf

7. október 2025
18:00
6 vikur
69.000 kr.
Sigrún Jónsdóttir
Lífsgæðasetur St. Jó

 

ADHD á kvennamáli er samvinnuverkefni Sigrúnar Jónsdóttur og Kristbjargar Konu sem báðar eru ADHD-markþjálfarar og eru báðar greindar með ADHD.

 

Um námskeiðið

Á námskeiðinu leggjum við grunn að bættu sjálfstrausti og jákvæðri sjálfsmynd með aðferðum ADHD markþjálfunar.

Við ræðum starfsemi ADHD heilans, hvernig hann hefur áhrif á færni þína, ákvarðanir og gjörðir og kennum þér einfaldar leiðir til að yfirstíga hindranir og auka sjálfsþekkingu. Við hægjum á, hlúum að og spornum gegn neikvæðum áhrifum álags, streitu og svefnerfiðleika með leiðum sem reynast hjálplegar til að róa taugakerfið m.a. með Yoga Nidra.

Ekki er nauðsynlegt að vera með ADHD greiningu til að taka þátt í námskeiðinu.

Haustnámskeið hefst 7. október 2025

Staðbundið námskeið 7. 14. 21. 28. okt. og 4. 11. nóv. kl. 18.00-20.30.

 

Staðsetning

Við hittumst í hlýlegu og fallegu umhverfi á 2. hæð Lífsgæðasetursins í Hafnarfirði.

Ekki er nauðsynlegt að vera komin með ADHD-greiningu til að taka þátt í námskeiðinu.

 

Innifalið

Veitingar ásamt námskeiðsgögnum og vinnubók.

Þátttakendum gefst kostur á einum fríum tíma í ADHD markþjálfun meðan á námskeiðinu stendur til frekari

sjálfsvinnu.

Stéttarfélög hafa tekið þátt í kostnaði vegna þátttöku á þessu námskeiði.

Við hvetjum þig til að kanna möguleikana hjá þínu stéttarfélagi.

Vinnumálastofnun greiðir námskeiðið fyrir konur í atvinnuleit.Þú getur skráð þig á námskeiðið hjá VMST.

Verð: kr. 69.000.- greiðslum má skipta í tvennt. Síðasta námskeið fylltist á örfáum dögum.

 

Nánar um námskeiðið

Námskeiðið er alls 12 klst og tvær klukkustundir í senn með matarhléi. Boðið er upp á veitingar ásamt námskeiðsgögnum og vinnubók. Þátttakendum gefst kostur á einum fríum tíma í ADHD markþjálfun meðan á námskeiðinu stendur til frekari sjálfsvinnu.

Allar nánari upplýsingar verða sendar skráðum þátttakendum ítölvupósti áður en námskeiðið hefst

Nánari upplýsingar í tölvupósti: adhdakvennamali@gmail.com

 

Fyrir hverja?

Námskeiðið er fyrir konur á öllum aldri sem vilja beina athyglinni að styrkleikum sínum, takast á við áskoranir og skila skömminni. Námskeiðið hentar konum sem eru tilbúnar að deila eða læra af reynslu annarra kvenna.

Allar nánari upplýsingar verða sendar skráðum þátttakendum í tölvupósti áður en námskeiðið hefst.

 

Vitnisburður þátttakenda

„Námskeiðið hefur gefið mér aukinn styrk og gert mér fært að sýna sjálfri mér meiri mildi, ást og virðingu. Sigrún og Kristbjörg eru skilningsríkar, hlýjar og uppfullar af alls konar fróðleik, stuðningi og eflingu. Ég get ekki beðið eftir framhaldsnámskeiði“.

Inga Hrönn Guðmundsdóttir athafnakona.

 

„Algjörlega frábært í alla staði. Námskeiðið var vel sett fram, þægilegt, afslappað og mér líður svo vel eftir að hafa tekið þátt í þessu námskeiði.“

Anna Þóra Björnsdóttir, verslunareigandi og uppistandari.

 

„Mér finnst ég hafa lært helling á þessu námskeiði. Það hjálpaði mér að skilja mig og mitt ADHD enn betur og ég fékk tækifæri til að spegla mig í öðrum konum og þeirra upplifunum sem var ómetanlegt. Ég er ofboðslega fegin að hafa slegið til.“

Halldóra Jóhannsdóttir þjónustufulltrúi

 

„Fræðslan og slökunin var æðisleg og mun nýtast mér vel. Sigrún og Kristbjörg eru greinilega mjög færar á sínu sviði og búa yfir mikilli þekkingu og reynslu sem þær miðluðu vel frá sér.“

Lilja Björk Guðrúnardóttir félagsráðgjafi. 

 

„Ég er virkilega ánægð með námskeiðið – vel uppsett, skipulagt, fjölbreytt, notalegt og eflandi. Það hefur bætt líf mitt og lífsgæði mín til muna. Kristbjörg og Sigrún eru yndislegir leiðbeinendur og upplifunin er þannig að þær séu að halda námskeiðið af eldmóði. Mjög flott að fá frían markþjálfunartíma. Litlu hlutirnir eins og veitingar, möppur og bækur skipta líka máli.“

Dagný Þóra Baldursdóttir Iðjuþjálfi

 

Fyrirvari

Námskeiðsgjöld eru greidd við bókun á námskeiðinu. Hægt er að greiða með korti eða velja að fá kröfu í heimabanka (hægt er að skipta greiðslum í tvennt með því að senda póst á adhdakvennamali@gmail.com og óska eftir því).

Skráning er bindandi og eru námskeiðsgjöld ekki endurgreidd.

Ófyrirsjáanleg forföll tilkynnast með 14 daga fyrirvara og við leitumst við að bjóða í staðinn þátttöku á næsta námskeiði.

Hlýjar kveðjur Sigrún og Kristbjörg

 

Hleð inn ...
Míró
Persónuverndaryfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.