YOGA NIDRA

YOGA NIDRA er forn hugleiðsluaðferð sem nýtur vaxandi vinsælda í hinum vestræna heimi.

Nidra þýðir svefn og er leiðsögn inn í djúpt slökunarástand handan skilningarvitanna, þar sem engin streita býr og fullkomin eining ríkir. Líkaminn sefur en hugurinn vakir.  YOGA NIDRA  er dýpsta form slökunar, 

Í þessu ástandi getur líkaminn náð jafnvægi og losað um streitu, kvíða og órólegar hugsanir. 

Nidra hjálpar fólki með svefnerfiðleika og hafa rannsóknir sýnt fram á að iðkun Yoga Nidra dregur úr streitu, kvíða og eykur einbeitingu og athygli. 

Djúpaslökun hjálpar við að losa um spennu og hindranir hugans sem geta draga úr okkur í daglegu lífi.

Aðferðin losar um streitu og spennu og kemur jafnvægi á ósjálfráða taugakerfið.

Þú þarft ekkert að gera, bara að vera. 

Rannsóknir benda til að 45 mínútur í YOGA NIDRA geti jafngilt þremur tímum í svefni og hvíld. Margir hafa notið góðs af því að iðka YOGA NIDRA og  er hún sérstaklega áhrifarík til að vinda ofan af streitu, spennu og bætir gæði svefns.

Hafðu samband

Þú getur sent okkur skilaboð hér.

Ekki læsilegt? Skipta um texta. captcha txt
0