ADHD á kvennamáli

Leiðarvísir að einfaldara lífi

9. apríl 2024
17:30
6 vikur
69.000 kr.
Sigrún Jónsdóttir
Kristbjörg Kona
Lífsgæðasetur St. Jó

ADHD á kvennamáli er samvinnuverkefni Sigrúnar Jónsdóttur og Kristbjargar Konu sem báðar eru ADHD markþjálfarar og eru báðar greindar með ADHD.

Um námskeiðið
Á námskeiðinu leggjum við grunn að bættu sjálfstrausti og jákvæðri sjálfsmynd með aðferðum ADHD markþjálfunar.
Við ræðum starfsemi ADHD heilans. Hvernig hann hefur áhrif á getu þína, ákvarðanir og gjörðir og kennum þér einfaldar leiðir til að yfirstíga hindranir og auka sjálfsþekkingu. Við hægjum á, hlúum að og spornum gegn neikvæðum áhrifum álags, streitu og svefnerfiðleika með leiðum sem reynast hjálplegar til að róa taugakerfið m.a með Yoga Nidra.

Fyrir hverjar?
Námskeiðið er fyrir konur á öllum aldri sem vilja beina athyglinni að styrkleikum sínum, takst á við áskoranir og skila skömminni.
Námskeiðið hentar konum sem eru tilbúnar að deila eða læra af reynslu annarra kvenna.

Nánar
Hópurinn hittist kl. 17:30 - 19:30 á þriðjudögum í sex skipti. Tvær klst. í senn.

Dagsetningar og tímasetningar
April. 9, 16, 23, og 30.
Maí. 7 og 14.

Staðsetning Við hittumst í hlýlegu og fallegu umhverfi Lífsgæðasetursins í Hafnarfirði.

Ekki er nauðsynlegt að vera komin með ADHD greiningu til að taka þátt í námskeiðinu.

Innifalið
Veitingar ásamt námskeiðsgögnum og vinnubók.
Þátttakendum gefst kostur á einum fríum tíma í ADHD markþjálfun á meðan á námskeiðinu stendur til frekari
sjálfsvinnu.

Verð: kr. 69.000.- greiðslum má skipta í tvennt.

 

Síðasta námskeið fylltist á örfáum dögum.

Stéttarfélög hafa tekið þátt í kostnaði vegna þátttöku á þessu námskeiði.

Við hvetjum þig til að kanna möguleikana hjá þínu stéttarfélagi.

Vinnumálastofnun greiðir námskeiðið fyrir konur í atvinnuleit.

Allar nánari upplýsingar verða sendar skráðum þátttakendum í
tölvupósti áður en námskeiðið hefst.

 

Nánari upplýsingar í tölvupóst: adhdakvennamali@gmail.com

 

Vitnisburður þátttakenda

,,Námskeiðið hefur gefið mér aukin styrk og gert mér fært að sýna sjálfri mér meiri mildi, ást og virðingu. Sigrún og Kristbjörg eru skilningsríkar, hlýjar og uppfullar af allskonar fróðleik, stuðningi og eflingu. Get ekki beðið eftir framhaldsnámskeiði“.

Inga Hrönn Guðmundsdóttir, athafnakona.

,,Algjörlega frábært í alla staði. Námskeiðið var vel sett fram, þægilegt, afslappað og mér líður svo vel eftir að hafa tekið þátt í þessu námskeiði.“

Anna Þóra Björnsdóttir,verslunareigandi og uppistandari.

,,Mér finnst ég hafa lært helling á þessu námskeiði. Það hjálpaði mér að skilja mig og mitt ADHD enn betur og ég fékk tækifæri til að spegla mig í öðrum konum og þeirra upplifunum sem var ómetanlegt. Ég er ofboðslega fegin að hafa slegið til.“

Halldóra Jóhannsdóttir, þjónustufulltrúi

,,Fræðslan og slökunin var æðisleg og mun nýtast mér vel. Sigrún og Kristbjörg eru greinilega mjög færar á sínu sviði og búa yfir mikilli þekkingu og reynslu sem þær miðluðu vel frá sér.“

Lilja Björk Guðrúnardóttir félagsráðgjafi.

,,Virkilega ánægð með námskeiðið – vel uppsett- skipulagt- fjölbreytt- notalegt og eflandi. Hefur bætt líf mitt og lífsgæði mín til muna. Kristbjörg og Sigrún eru yndislegir leiðbeinendur og upplifunin er þannig að þær séu að halda námskeiðið af eldmóði. Mjög flott að fá frían markþjálfunar tíma. Litlu hlutirnir eins og veitingar, möppur og bækur skipta líka máli.“

Dagný Þóra Baldursdóttir, Iðjuþjálfi.

 

Hleð inn ...

Sendu okkur skilaboð