Vöxtur og vegferð

Fyrir einstaklinga á einhverfurófinu

22. apríl 2024
13:00
6 vikur
69.500 kr.
Lífsgæðasetur St. Jó

Vöxtur og vegferð - My Growth Path


Heimastyrkur og Míró sameina krafta sína á námskeiðinu.

Tilgangur námskeiðsins er að skilja kjarna persónunnar, ólíka hegðun og tegund af samskiptum. Áhersla er lögð á mikilvægi samkenndar og kærleika í eigin garð, trú á eigin getu og veittur stuðningur við að móta næstu skref í vegferð lífsins. Markmið þátttöku er að efla sjálfsmynd, skilning á eigin líðan og efla getu til að takast á við ólíkar aðstæður í samskiptum, félagsþátttöku og náms- eða atvinnuþátttöku.

Námskeið ætlað einstaklingum 16 ára og eldri sem eru með greiningu eða hafa grun um að vera á einhverfurófinu og búa að krefjandi reynslu af vinnumarkaði / námi, félagsþátttöku og samskiptum.

Námskeiðið fer fram á mánudögum í 2 klst í 6 vikur og hvert skipti er 4 kennslulotur með pásu. Það er uppbyggt með fræðslu, verkefnum, umræðum og gagnlegum æfingum.

·       Vika 1 stýrifærni heilans og áhrif taugaþroskaröskunar

·       Vika 2 félagsþátttaka, tengslamyndun og samskipti

·       Vika 3 skynjun og skynfæri líkamans, áskoranir í skynúrvinnslu

·       Vika 4 stýrifærni og skynjun sameinuð gagnvart masking og margbreytileika

·       Vika 5 styrkleikar, áskoranir og máta sig vinnu, nám, persónuleg markmið

·       Vika 6 draga saman áherslur námskeiðs og setja upp drög að næstu skrefum

Námskeiðið er byggt á hugmyndafræði um m.a. taugasálfræði-legan þroska, stýrifærni heilans, skynjun og áskoranir í skynúrvinnslu, iðju og mikilvægi hennar út frá iðjuþjálfunarfræðum, reynslunámi, valdeflingu og eigin áhrifamætti og fjölgreinda-kenningu Howard Gardner.​

 

Námskeiðsgjald er 69.500 kr. Skráning hér

Námskeiðið fer fram sem stað- og fjarnámskeið á mánudögum milli 13:00-15:00 í Lífsgæðasetrinu St. Jó og á skjá.​

Næsta námskeið:

22. apríl - 3. júní 2024.

​Námskeiðshaldarar eru:

Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi, ráðgjafi og faghandleiðari með MA í öldrunarfræðum eigandi Heimastyrkur.is   
Guðrún Jóhanna býr að áralangri reynslu af því að starfa m.a. við endurhæfingu, stuðning, þjálfun og ráðgjöf fyrir börn, unglinga og fullorðna með adhd, á einhverfurófi og með áskoranir í skynúrvinnslu og aðstandendur þeirra. Þjónustan hefur farið fram innan skólaumhverfis, inn á heimilum, vinnustöðum og tengt dagþjónustu. Guðrún hefur tekið þátt í kennslu í framhaldsskólum, háskólum og símenntunarmiðstöðvum, haldið fyrirlestra, fræðslu og námskeið samhliða stjórnendahlutverki innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu frá 2008. Í dag rekur hún Heimastyrk með starfstofur í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði, Heilsuklasanum í Reykjavík, á vettvangi og gegnum fjarfundabúnað með leyfi Embætti landlæknis. Netfang heimastyrkur@heimastyrkur.is   
 
Sigrún Jónsdóttir, þroskaþjálfi, einhverfu - og ADHD markþjálfi, ráðgjafi og eigandi Miro.is 
Sigrún rekur í dag Miró Markþjálfun og ráðgjöf. Þar starfar hún þar sem þroskaþjálfi, ráðgjafi og markþjálfi auk þess að starfa og reka Svefn Yoga sem Yoga Nidra kennari. Hún hefur á 30 ára feril sem þroskaþjálfi unnið með börnum, unglingum og foreldrum í skólakerfinu, á heimilum og í dagþjónustu með ungmennum og fullorðnum sem eru með ADHD eða einhverfu. Hún hefur persónulega reynslu af áskorunum og tækifærum einstaklinga með ADHD og einhverfurófinu úr sínu nánasta umhverfi. Netfang miro@miro.is

Sendu okkur skilaboð