Yoga Nidra á fimmtudögum í október og nóvember 2026 „LOKAÐUR HÓPUR“

22. október 2026
18:30
6 vikur
0 kr.
Sigrún Jónsdóttir
Ólafur Sigvaldason
Lífsgæðasetur St. Jó
Dagsetningar

Tímarnir eru á fimmtudögum. Dagsetningarnar eru 22. október til 26. nóvember 2026, samtals sex skipti. Meðan á námskeiðinu stendur hafa iðkendur aðgang að upptökum á Yoga Nidra hugleiðslum sem hægt er að nýta heimavið meðan á námskeiðinu stendur.

Staður og stund

Tímarnir hefjast stundvíslega klukkan 18:30  í Auganu, sal á 4. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó., Suðurgötu 41, Hafnarfirði. Hver tími er um það bil 60 mínútur. Gott er að vera mætt/mættur 10 mínútum fyrr, koma sér vel fyrir á dýnu og slaka á. Mikilvægt er að komið sé inn í salinn í ró og kyrrð sé í salnum þar til slökunin hefst.

Stundvíslega kl. 18:30 er salnum lokað og Yoga Nidra stundin hefst. Míró Svefn Yoga bíður upp á allan búnað.

ATH!

Takmarkaður fjöldi plássa er á hvert námskeiðið.

Kennarar 

Sigrún Jónsdóttir og Ólafur Sigvaldason Yoga Nidra kennarar hjá Míró Svefn Yoga leiða tímana á fimmtudögum.

Þau hafa lokið Yoga Nidra kennararéttindum í grunn- og framhaldsnámi hjá Kamini Desai, I am Yoga Nidra,  kennaranámi í Pranyama Yoga öndun hjá Matsyendra og fyrsta stigi í tónheilun með kristalskálum og gongi.

Míró
Persónuverndaryfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.