Yoga Nidra

Yoga Nidra er leidd djúpslökun.

16. maí 2024
17:00
4 vikur
11.000 kr.
Sigrún Jónsdóttir
Ólafur Sigvaldason

Á fimmtudögum frá 16. maí til 6. júní býður Svefn Yoga upp á Yoga Nidra kl. 17:00 í Lífsgæðasetri St. Jó. Samtals fjögur skipti.

 
Dagsetningar

Fimmtudaga 16. 23. og 30. maí ásamt 6. júní

 

Staður og stund

Hefjast tímarnir stundvíslega klukkan 17:00 í Auganu, sal á 4. hæðinni. Gott er að vera mætt/mættur 10 mínútum fyrr, koma sér vel fyrir á dýnu og slaka á. Mikilvægt er að komið sé inn í salinn í ró og kyrrð sé í salnum þar til slökunin hefst. Stundvíslega kl. 17:00 er salnum lokað og Nidra stundin hefst.

 

Skráning og verð

Ganga þarf frá bókun hér og þú færð senda kröfu í heimabanka eða greiðir með korti við bókun. Takmarkaður fjöldi plássa er á hvert námskeiðið.

Verð kr. 11.000.-

Mörg stéttarfélög styrkja félaga sína með líkams- eða heilsustyrk.

Iðkendur fá sendann tölvupóst um tilhögun Yoga Nidra fyrir fyrsta tímann. 

 

Um Yoga Nidra

Yoga Nidra er leidd djúpslökun. Rannsóknir sýna að 45 mínútur í Yoga Nidra jafngildir 4 klst. í svefn. Rannsóknir bæði á íslandi og erlendis sýna gildi Nidra fyrir þá sem eru að takast á við streitu, kulnun, álag, svefnerfiðleika, kvíða eða þunglyndi. Iðkendur liggja á dýnu í algerri slökun og eru leiddir áfram skref fyrir skref af Yoga Nidra kennara. Líkaminn sefur en undirmeðvitundin vakir.

 

Kennarar

Sigrún Jónsdóttir og Ólafur Sigvaldason Yoga Nidra kennarar Svefn Yoga leiða tímana á fimmtudögum. Þau hafa lokið Yoga Nidra kennararéttindum í grunn- og framhaldsnámi hjá Kamini Desai, I am Yoga Nidra,  kennaranámi í Pranyama Yoga öndun hjá Matsyendra og fyrsta stigi í tónheilun með kristalskálum og gongi.

Hleð inn ...

Sendu okkur skilaboð