Á fimmtudögum frá 29. febrúar til 11. apríl býður Svefn Yoga upp á Yoga Nidra kl. 17:00 í Lífsgæðasetri St. Jó. Samtals sex skipti.
Dagsetningar eru fimmtudagana 29. febrúar, 7. – 14. og 21. mars auk 4. og 11. apríl. (28. mars er Skírdagur)
Hefjast tímarnir stundvíslega klukkan 17:00 í Auganu, sal á 4. hæðinni. Gott er að vera mætt/mættur 10 mínútum fyrr, koma sér vel fyrir á dýnu og slaka á.
Mikilvægt er að komið sé inn í salinn í ró og kyrrð sé í salnum þar til slökunin hefst.
Stundvíslega kl. 17:00 er salnum lokað og Nidra stundin hefst.
Iðkendur fá sendann tölvupóst um tilhögun Yoga Nidra fyrir fyrsta tímann. Verð kr. 16.500 .-
Yoga Nidra er leidd djúpslökun.
Rannsóknir sýna að 45 mínútur í Yoga Nidra jafngildir 4 klst. í svefn. Rannsóknir bæði á íslandi og erlendis sýna gildi Nidra fyrir þá sem eru að takast á við streitu, kulnun, álag, svefnerfiðleika, kvíða eða þunglyndi.
Iðkendur liggja á dýnu í algerri slökun og eru leiddir áfram skref fyrir skref af Yoga Nidra kennara. Líkaminn sefur en undirmeðvitundin vakir.
Sigrún Jónsdóttir og Ólafur Sigvaldason Yoga Nidra kennarar Svefn Yoga leiða tímana á fimmtudögum.
Þau hafa lokið Yoga Nidra kennararéttindum í grunn- og framhaldsnámi hjá Kamini Desai, I am Yoga Nidra, kennaranámi í Pranyama Yoga öndun hjá Matsyendra og fyrsta stigi í tónheilun með kristalskálum og gongi
Mörg stéttarfélög styrkja félaga sína með líkams- eða heilsustyrk.
Gangtu frá bókun hér og þú færð senda kröfu í heimabanka eða greiðir með korti við bókun.
Takmarkaður fjöldi plássa er á hvert námskeiðið.